Ertu að taka upp?
Veit ekki hvað ég vil sjá
þegar ég loka augunum.
Skýin svo tómlega grá,
sama hvar ég er.
Heimurinn snýst hratt í hringi,
er samt ekki á hreyfingu.
Hvort var það rétt eða rangt að fara frá þér?
En kannski áttirðu aldrei orðin sem ég beið og beið eftir,
kannski var ég aldrei það sem að þú þurftir.
Og kannski sneri ég mér undan þegar ég átti‘ að doka við
eins og sólbóm sem snýr í burt frá sólinni.
Ég visnaði.
Ég visnaði.
Ég veit að við reyndum allt
og keyrðum út að heimsenda.
En gleymdum því hvað það var kalt
að koma aftur heim.
Nú er ég bæði með þig
og kántrí lag á heilanum.
Hvort var það rétt eða rangt
að fara sitt hvora leið?
En kannski áttirðu aldrei orðin sem ég beið og beið eftir,
kannski var ég aldrei það sem að þú þurftir.
Og kannski sneri ég mér undan þegar ég átti‘ að doka við
eins og sólbóm sem snýr í burt frá sólinni.
Ég visnaði.
Ég visnaði.
En kannski áttirðu aldrei orðin sem ég beið og beið eftir,
kannski var ég aldrei það sem að þú þurftir.
Og kannski sneri ég mér undan þegar ég átti‘ að doka við
eins og sólbóm sem snýr í burt frá sólinni.
No comments:
Post a Comment